Fréttir eftir mánuðum
17. maí 2005
Sýningin Heilsa og Forvarnir 17. - 20. maí
Sýningin Heilsa og Forvarnir verður haldin dagana 17. - 20. maí í Kringlunni. Um 40 sjálfboðaliðar koma að sýningunni og er aðalmarkmiðið að aðstoða íslendinga við að öðlast betri heilsu. Á sýningunni verður hægt að fá ókeypis mælingar á kólesteróli, blóðsykri, blóðþrýstingi ásamt öndunarmælingu.Nánar
13. maí 2005
Gjafadagar 12. - 22. maí
Nú eru Gjafadagar í Kringlunni og standa þeir til 22. maí. Á Gjafadögum er áhersla verslana lögð á brúðkaups- og útskriftargjafir sem og undirbúning fyrir brúðkaups- og útskriftarveislur. Á Gjafadögum fer af stað Brúðargjafaleikur Kringlunnar 2005. Þar gefst þeim sem kaupa brúðkaupsgjafir í Kringlunni kostur á að fylla út þátttökuseðil með sínu eigin nafni og nöfnum brúðhjónanna. Heppnir viðskiptavinir geta unnið glæsilegar gjafir úr verslunum Kringlunnar eða "boðið" brúðhjónunum í brúðkaupsferð til San Fransisco.Nánar
13. maí 2005
Huun Huur Tu
Mongólsku barkasöngvararnir Huun Huur Tu munu koma fram á Blómatorginu í Kringlunni í dag kl. 17.30. Hljómsveitin mun koma fram á Listahátíð í Reykjavík sem hefst formlega á morgun, 14. maí.Nánar
05. maí 2005
Opið í dag, uppstigningardag
Fjöldi verslana er með opið í Kringlunni í dag, uppstigningardag, frá kl. 13 - 17. Vorsalan í fullum gangi og því um að gera að koma og gera góð kaup fyrir sumarið.Nánar