Fara beint á efnisyfirlit

Fréttir eftir mánuðum

19. október 2005

Kringlufitness um helgina

Upphitun fyrir íslandsmótið í "fitness" verður á Blómatorgi Kringlunnar laugardaginn 22. október nk. Er þessi upphitun í Kringlunni orðinn fastur liður í undirbúningi fyrir íslandsmótið sem fram fer í nóvember. Á laugardaginn munu karlar keppa í upphífingum og dýfum en konur í armbeyjum og fitnessgreip.
Nánar

13. október 2005

Vann ferð til New York á Tískudögum

Hlynur Ingólfsson, tvítugur Reykvíkingur, datt í lukkupottinn eftir verslunarferð á tískudögum Kringlunnar á dögunum. Tískudagarnir voru haldnir til að fagna því að hausttískan er komin í hús og var gestum meðal annars boðið að taka þátt í skemmtilegum leik og var ferð fyrir tvo til New York í vinning.
Nánar

13. október 2005

Kringlukast er hafið - Nýtt kortatímabil

Kringlukast hefst í dag, fimmtudag og er opið til kl. 21 í kvöld. Á Kringlukasti er jafnan veittur 20 - 50% afsláttur af nýjum vörum í verslunum Kringlunnar. Nýtt kortatímabil hefst einnig í dag. Kringlukasti lýkur svo á sunnudag. Kringlukastblaðinu var dreift inn á öll heimili á landinu í gær og er þar að finna fjölda góðra Kringlukast-tilboða frá verslunum Kringlunnar.
Nánar


Aukaval


Leit


Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi

Kringlan, verslunarmiðstöð, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík, sími 517 9000, fax 517 9010, netfang kringlan@kringlan.is