Fréttir eftir mánuðum
25. janúar 2005
Skíðadagar
Dagana 22. - 30. janúar eru skíðadagar í Kringlunni. Stólar og kláfur úr nýju lyftunni í Bláfjöllum eru til sýnis á göngum Kringlunnar en auk þess gefst viðskiptavinum kostur á að taka þátt í spennandi getraun þar sem glæsileg verðlaun eru í boði.Nánar
14. janúar 2005
Söfnun hefst í Kringlunni í dag
Í dag og á morgun laugardag munu sjálfboðaliðar á vegum Landssöfnunarinnar "Neyðarhjálp úr Norðri" vera í Kringlunni með söfnunarbauka. Búast má við að breiður hópur fólks muni taka að sér söfnunarhlutver, jafnt þekktir sem óþekktir einstaklingar. Jafnframt verður boðið upp á fjölbreytta skemmtidagskrá báða dagana.Nánar
12. janúar 2005
Neyðarhjálp úr norðri
Landssöfnunin "Neyðarhjálp úr norðri? fyrir þá sem lifðu af hamfarirnar í Asíu er hafin. Um helgina verður safnað jafnhliða skemmtidagskrá í Kringlunni, Smáralind og Glerártorgi á Akureyri.Nánar
03. janúar 2005
Útsölur hefjast
Útsölutímabilið hefst af fullum krafti í Kringlunni fimmtudaginn 6. janúar og er óhætt að fullyrða að gera megi góð kaup í Kringlunni á tímabilinu. Nokkrar verslanir hafa tekið forskot á sæluna og hafið útsölur nú þegar.02. janúar 2005
Gleðilegt nýtt ár!
Í dag hafa ýmsar verslanir Kringlunnar opið en einhverjar verslanir munu nýta daginn til vörutalninga og verða því lokaðar af þeim sökum.Nánar
02. janúar 2005
Vinningsnúmerin í jólastjörnuleik Kringlunnar og Icelandair
Hér getur þú séð öll vinningsnúmerin í jólastjörnuleik Kringlunnar og Icelandair. Til mikils er að vinna í leiknum svo um að gera að gá hvort þín jólagjafahandbók hefur vinningsnúmer á forsíðunni.Nánar
01. janúar 2005
Gleðilegt nýtt ár!
Í dag, nýársdag, er lokað í verslunum Kringlunnar. Á morgun, 2. janúar, hafa ýmsar verslanir opið. Kringlan þakkar fyrir ánægjuleg viðskipti á árinu sem er að líða og óskar landsmönnum gleðilegs nýárs.Nánar