Gjafakort
Gjafakort Kringlunnar.
Á starfsmaður hjá fyrirtæki þínu stórafmæli? Er vinahópurinn að safna saman í eina gjöf, eða ertu hreinlega í vandræðum með hvað þú átt að gefa? Ef svo er þá er gjafakort Kringlunnar tilvalinn kostur fyrir þig. Það er fallegt, þægilegt og þú getur verið viss um að viðtakandinn verði ánægður með gjöfina.
Gjafakort Kringlunnar fást á þjónustuborði Kringlunnar á 1. hæð við Hagkaup. Hægt er að kaupa kort fyrir hvaða upphæð sem er að lágmarki 3.000 krónur. Einnig er hægt að kaupa gjafakortin á netinu ef greitt er með kreditkorti og láta senda í ábyrgðarpósti til viðtakanda ásamt kveðju. Kaupa gjafakort
Jólagjafir starfsfólks - 20 kort eða fleiri
Forsvarsmenn fyrirtækja sem huga að jólagjöfum fyrir starfsfólk geta verið vissir um að gjafakort Kringlunnar slái í gegn - starfsfólkið velur sína gjöf sjálft innan um fjölbreytt úrval verslana.
Pantanir, 20 kort eða fleiri skulu berast til rekstrarstjóra Kringlunnar gegnum netfangið vidar@kringlan.is þar sem tekið er fram nafn og kennitala fyrirtækis ásamt auðvitað fjölda korta og upphæðum inn á þeim.
Gjafakort Kringlunnar eru rafræn og virka á svipaðan hátt og debetkort nema að því leyti að þau eru handhafakort. Gjafakort Kringlunnar gildir í öllum verslunum Kringlunnar nema Vínbúðinni. Söluvagnar á göngum Kringlunnar taka ekki við gjafakorti. Innistæðu kortsins er ekki hægt að leysa út fyrir reiðufé né leggja inn í banka.
Gildistími gjafakortanna er þrjú ár. Upplýsingar um stöðu kortsins fást á forsíðu vefsins og í þjónustusímanum 515 4444.